Leita í fréttum mbl.is

,,Júdasar“ stungnir í bakiđ !!!

 

 

Margt er ađ í nútímanum og má ţađ finna jafnt hérlendis sem erlendis. Fjölmiđlar fara mikinn í lýsingum af spillingarmáli hjá ESB og virđast margir hverjir harmi lostnir yfir ađ jafnvel ţar geti slíkt átt sér stađ. Ađrir vilja halda ţví fram ađ spillingarmál séu hvarvetna til stađar í Evrópusambandskerfinu og fréttamenn ţurfi ekki ađ láta eins og útsendari Satans hafi fundist í himnaríki !

 

Siđmenningarlega stöđu nútímans er hćgt ađ mćla út frá mörgu sem gerist, en eitt sem segir ţar sitt, er ađ menn sem leika Júdasarhlutverk nú á tímum eiga ţađ til ađ kvarta opinberlega yfir ţví ađ hafa veriđ stungnir í bakiđ og eru fullir heilagrar vandlćtingar yfir svo hrćđilega svívirđi-legum verknađi !

 

Slíkir menn eru orđnir svo siđvilltir ađ ţeir snúa málum alveg á hvolf. Ţeir sjá sig ekki sem gerendur vondra hluta, ţeir upplifa sig ţvert á móti sem fórnarlömb ţeirra sem vinna vond verk. Júdasar liđinna tíma hegđuđu sér yfirleitt ekki ţannig. Sumir ţeirra iđruđust og játuđu brot sín síđar og sá sem er líklega hin ómeđvitađa fyrirmynd ţeirra gekk út og hengdi sig !

 

Ađ vera Júdas og svíkja vini sína og félaga, svíkja skyldur sínar og yfirlýst markmiđ, er eitt af ţví lćgsta sem lifandi mađur getur lagt sig niđur viđ. Og ţegar sá sem ţađ gerir ásakar ađra fyrir slík svik, er hann staddur í tómarúmi tálsýna og veruleikaskerđingar. Hann er orđinn ađ fórnarlambi eigin sjálfsmeđaumkvunar og vćlir í öfugsnúinni eigingirni sinni ,, ţađ er veriđ ađ stinga mig í bakiđ !“

 

Ţađ er vont hlutskipti ađ reyna ađ vera mađur ţegar ekki eru lengur forsendur til ţess. Ţegar menn hafa falliđ á ţví prófi. Ísland er nú í dag orđiđ ríki sem keyrt er áfram á kapítalisma og nýfrjálshyggju, eigingirni og hreint út sagt yfirgengi-legri grćđgi einstaklingshyggjunnar !

 

Ónefndur frjálshyggjupostuli hefđi eigin-lega átt ađ vera í ćđstaprests-hlutverkinu í Seđlabankanum, en sennilega ţykir hann orđinn of gamall, enda ţarf enginn ađ efast um ađ núverandi seđlabanka-stjóri getur alveg sinnt ţví hlutverki og ţađ jafnvel alveg í ţeim anda sem krafist er !

 

Verkalýđsforingjar eru ekki lengur til á Íslandi. Í ţeirra stađ eru komnir sauđir sem reknir eru inn í rétt SA og látnir skrifa ţar undir eitthvađ sem ţeir hafa ekki hugmynd um hvađ er eđa hvernig ţađ virkar. Ţeir eru heldur ekki á neinu lúsarkaupi eins og venjulegir launţegar í landinu. En slíkir eru nú forustumenn verkalýđsins í dag og ekki er unnt ađ bera neina virđingu fyrir ţeim !

 

Nýgerđir samningar eru nefnilega svik viđ launţega. Ţar er um kjaralćkkunar-samninga ađ rćđa. Enn og aftur er verđbólgu og afleiđingum hennar velt yfir á launţega og ţá mest sem minnst mega viđ ţví. Ţađ er gamla sagan hjá hinni óţjóđlegu atvinnu-rekendaklíku landsins, ađ enginn ágóđi í rekstri ţjóđarbúsins eigi eđa megi skila sér til verkafólks !

 

Enn er fariđ í spor hinnar göróttu og glćpsamlegu ţjóđarsáttar, ţar sem öllum kostnađi og skuldum óráđsíu-valdaaflanna var steypt yfir almenning í landinu. Svo voru tilteknir menn settir á háan stall og sagđir hafa unniđ ţjóđhagslegt afrek. En ţeir voru bara duglausar druslur sem létu nota sig í innantóm sirkushlutverk !

 

Ţađ var sem fyrr segir aldrei unniđ neitt afrek međ hinni svokölluđu ţjóđarsátt. Hún var bara blekkingar-gjörningur sem hefđi ţessvegna getađ veriđ kominn beint upp úr glóđum helvítis. Ljót voru svikin og óhreinlyndiđ í kringum ţađ ferli. Og bölvunin frá ţví lygaspili er enn í virkasta gangi í samfélagi okkar ţví skíturinn frá ţví spillingarverki lođir áfram viđ allt !

 

Og ţađ er engin furđa ţó menn, sem ađ nýafstöđnum samnings-málum komu, segist vera međ óbragđ í munni og telji ţađ engan heiđur ađ vera myndađir međ sumum öđrum. Ţar virđist ţó einhver sómatilfinning vera til stađar ţó manndóms-styrkurinn og baráttu-hugurinn mćtti hafa veriđ meiri á hólminum sjálfum !

 

Prímadonnustjórnin sem nú situr viđ völd, sem aldrei skyldi veriđ hafa, er heldur ekki verkalýđssinnuđ í neinum skilningi ţess orđs. Ţar tryggja meirihlutavaldiđ herleiddir aumingjar sem töldu sig eitt sinn til vinstri, en eru núna ţjónandi ţeim auđvaldsöflum sem verst hafa alla tíđ reynst almannahag á Íslandi og fara síst batnandi. Já, ţađ er margur  Júdasinn í ţessu landi !

 

Ţó ađ fátt bendi til batnandi hluta, verđur mađur samt ađ reyna ađ viđhalda voninni um réttlćtisdóma hins efsta dags. En ţađ er erfitt ađ trúa á réttlćti í ţjóđfélagi ţar sem ranglćtiđ rćđur lögum og lofum til lands og sjávar og stjórnvöldum er alls ekki hćgt ađ treysta !

En mađur trúir ţví samt og vonar innilega - ađ allir Júdasar mannlífsins hafni ađ lokum á versta hugsanlega stađ, vegna allra misgerđa sinna, glćpa og svikasamninga, og ţá á ég viđ – í svartasta helvíti !


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 38
  • Sl. sólarhring: 99
  • Sl. viku: 1268
  • Frá upphafi: 317462

Annađ

  • Innlit í dag: 31
  • Innlit sl. viku: 967
  • Gestir í dag: 30
  • IP-tölur í dag: 30

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband