Leita í fréttum mbl.is

Kvikmyndir og reykingar


Ţađ hefur varla fariđ framhjá neinum sem horft hefur á kvikmyndir, ađ ţar hefur

veriđ reykt mikiđ frá fyrstu tíđ. Oftast er ţađ sígarettan sem hefur leikiđ stćrsta hlutverkiđ í reykingamálunum á tjaldinu en vindlar hafa líka komiđ ţar talsvert viđ sögu.

Jafnan hefur leikiđ sterkur grunur á ţví ađ frćgir leikarar og leikkonur, svonefndar stjörnur, hafi iđulega fengiđ greiđslur frá tóbaksframleiđendum fyrir ađ auglýsa vöru ţeirra svo rćkilega sem raun hefur boriđ vitni. Ţó erfitt sé ađ sanna slíkt eru töluverđar líkur á ţví ađ svo hafi veriđ í ýmsum tilfellum.

Í dag er ţađ ljóst mál ađ enginn getur lengur stundađ reykingar öđruvísi en ađ gera ţađ vitandi vits gegn hagsmunum eigin heilsufars. Sannanirnar fyrir skađsemi reykinga eru orđnar slíkar ađ ţađ er engum stćtt á ţví ađ andmćla ţeim. Ef viđ lítum á frćga leikara ţá getum viđ séđ ađ Yul Brynner lést úr lungnakrabba. Hann sleppti aldrei sígarettunni og sagđi í alkunnu viđtali skömmu fyrir dauđa sinn: " Now, that I´m gone, I tell you, don´t smoke ! "

Robert Taylor var keđjureykingamađur og lést líka úr lungnakrabba. John Wayne var mikill reykingamađur og lungnakrabbinn tók hann einnig.

Hvađ drap Steve McQueen, jú, ţađ sama, krabbi í lungum. Jason Robards féll fyrir ţví sama og eins Robert Mitchum. Ţannig fór líka fyrir Stanley Baker og Victor French og fleiri köppum hvíta tjaldsins.

Humphrey Bogart var hrikalegur reykingamađur. Ţađ mátti nánast segja ađ helmingurinn af leik hans í hverri mynd hafi snúist í kringum ţađ ađ reykja. Hann fékk krabbamein í hálsinn og lést af ţví.

Ţannig fóru líka Brian Donlevy og Jack Hawkins og banamein Anthony Quinn var ađ hluta til ţađ sama. Brenda Marshall og Lana Turner létust líka af völdum hálskrabba. Lana reykti eins og strompur alla tíđ og drakk mikiđ. Lífshamingja hennar var alla tíđ í molum. Glansmyndin sem sýnd var af henni átti sem sagt lítiđ skylt viđ raunveruleikann. Ţessi framangreindu dauđsföll má ađ öllum líkindum rekja meira eđa minna til reykinga.

Í framhaldi getum viđ svo litiđ á fleiri tilfelli, ţó ekki sé víst ađ ţau megi öll heimfćra sem beinar afleiđingar reykinga.

Alec Guinness dó úr lifrarkrabba, eins Anthony Quayle.  Stewart Granger lést úr krabba, sama er ađ segja um Edward G. Robinson, Lilly Palmer og Mariu Perschy, Chill Wills og Dan Duryea.

Ingrid Bergman lést úr krabbameini í brjósti, Laurence Harvey lést úr magakrabba, Raymond Burr úr nýrnakrabba, Gary Cooper, Sterling Hayden og Fredric March fóru allir úr krabbameini í blöđruhálskirtli, Anna Magnani, Marcello Mastroianni, Simone Signoret, Rex Harrison og Michael Landon, úr krabba í kirtlum og víđar. Fleiri dćmi mćtti nefna úr stjörnuhópnum en ég lćt ţetta nćgja hér.

Ţví verđur svo sem ekki neitađ ađ margt af ţessu fólki var komiđ á efri ár ţegar ţađ lést og úr einhverju hlaut ţađ ađ deyja - gćtu sumir sagt.

En í ýmsum tilfellum er sagt ađ viđkomandi hafi dáiđ af  " náttúrulegum ástćđum. " Ţá er átt viđ ađ aldur og hrörnun hafi smám saman leitt til dauđa viđkomandi. Ekkert í ţví sambandi bendir sérstaklega á reykingar sem dauđavald eđa ađ fólk hafi sérstaklega veriđ ađ gera í ţví ađ drepa sig.

Og ţó ađ fólk sem ekki reykir geti vissulega dáiđ úr krabbameini, hefur ţađ kannski ekki gert neitt afgerandi vitlaust til ađ fara međ slíkum hćtti - en ţađ gerir reykingafólk. Ţađ býđur hćttunni heim međ ţví ađ reykja og dauđi af völdum krabbameins í lungum eđa hálsi er vondur endir á lífinu.

Nú eru áramót framundan og tilvaliđ fyrir reykingafólk ađ hefja nýtt ár í reyklausum anda - í eigin ţágu og annarra.

Yul Brynner benti fólki á ađ varast reykingavítiđ - varast ţađ víti sem skóp honum aldurtila. " Reykiđ ekki " sagđi hann og nú í dag er hćgt ađ segja međ enn meiri sannfćringarkrafti viđ alla ţá sem sjúga ţennan óţverra sem tóbakiđ er, - takiđ ekki afstöđu gegn eigin heilsu, svíkiđ ekki skynsemi ykkar, horfist í augu viđ stađreyndirnar og reykiđ ekki !


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 128
  • Sl. viku: 1179
  • Frá upphafi: 316778

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 883
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband