22.3.2022 | 08:33
Að drepa börn í stríði !
Við Íslendingar höfum lengi montað okkur af því að vera komnir af víkingum. En er það eitthvað til að hreykja sér af ? Hvað gerðu víkingar, hverjir voru siðir þeirra ? Jú, meðal annars stunduðu þeir það sem íþrótt að henda börn á spjótsoddum. Að drepa börn er ævagömul siðvenja í stríðsátökum og þar hefur enginn verið öðrum skárri !
Við Íslendingar teljum okkur vera afkomendur norskra víkinga og Rússar eru taldir vera afkomendur sænskra víkinga. Sjálfsagt hafa víkingar, jafnt norskir sem sænskir, stundað dráp á börnum samfara ránskap sínum og yfirgangi við aðrar þjóðir. Það var stríðsvenjan sem áður segir og viðurkennd íþrótt að drepa börn með fyrrnefndum hætti. Af níðingum sem stunduðu slíkt framferði erum við Íslendingar víst komnir !
Það hafa líklega aldrei verið háð stríð þar sem börn hafa ekki verið drepin. Og eftir að sprengjur komu til og ekki síst yfirgengilegar loftárásir, hafa engir stríðsaðilar hirt um það hverjir yrðu fyrir sprengjuregninu. Sprengjur Þjóðverja á breskar borgir í heimsstyrjöldinni síðari hlífðu ekki börnum, sprengjur Bandamanna á þýskar borgir gerðu það ekki heldur !
Bandarískar sprengjuárásir á Víetnam urðu fjölda barna að bana og eiturefnahernaður, napalm og Agent Orange líka. Eins var það í Írak í stríðinu þar á síðari árum og í loftárásum á fjallaþorp í Afghanistan, alltaf var töluvert um börn meðal fórnarlamba slíkra árása !
Börn eru yfirleitt staðsett hjá foreldrum sínum eða ættingjum og þegar verið er að drepa óbreytta borgara með sprengjukasti eru börn drepin líka. En dráp á börnum eru sami glæpurinn hver sem í hlut á !
Við skulum líka hafa það fast í huga að börn eru það fegursta og saklausasta sem til er í lífinu. Þau eru vaxtarbroddur lífsins og framtíðin holdi klædd. Börn eru falin ábyrgð okkar og ættu alls staðar að vera friðhelg, en þau falla sem aðrir í sérhverri óáran mannlífsins !
Það gerist ekki hvað síst í styrjöldum og hræðilegum hungursneyðum sem oft eru framkallaðar af mannavöldum og afleiðingar misskiptingar og ranglætis !
Þegar her Rússlands drepur börn með sprengjuárásum á Úkraínu fremur hann glæp og þegar Úkraínuher drepur börn með sprengjum í Donbass-héraði er það alveg hliðstæður glæpur. Það er enginn munur þar á glæpagjörðunum !
En það er mikill munur á því hvernig fjallað er um slíka atburði. Í öðru tilfellinu er glæpurinn blásinn upp og allt gert til að nota hann í áróðursskyni fyrir pólitískan tilgang, en í hinu tilfellinu er þagað yfir öllu og allt þaggað niður !
Er það gamla vestræna túlkunin sem er látin gilda þar, túlkunin sem hefur alltaf staðið á því að ,,góðu gæjarnir fremji ekki stríðsglæpi ? Síbylju fréttaflutningurinn um barnadráp rússneska hersins í Úkraínu er þegar orðið þreytandi áróðursefni, því börn eru alls staðar drepin í stríði !
Slíkur fréttaflutningur verður til þess öllu fremur að menn fara að hugleiða ábyrgðarleysi stríðsaðgerða yfir höfuð og í alhliða skilningi. Eða hvaða stríðsaðili í víðri veröld drepur ekki börn ?
Bandaríkjamenn og almennt talað Natóliðar, hinir þráttnefndu ,,góðu gæjar, gætu kannski hugsað sér að merkja sprengjur sínar Ekki ætlaðar börnum, og þar með kynna það jafnframt rækilega í fjölmiðlum að svo hafi verið gert, en það mun ekki skila neinu. Börn munu verða drepin sem áður því sprengjurnar fara ekki í manngreinarálit !
Börn eru alls staðar drepin þar sem kemur til stríðsátaka og ekki síst þar sem loftárásir eru stundaðar. Staðreyndir málanna eru einfaldlega þessar: Rússneskt hervald drepur börn með sprengjuregni í Úkraínu, úkraínskt hervald hefur einnig drepið börn með sprengjuregni í Donbass !
Bandarískt hervald drap líka börn með hliðstæðu sprengjuregni í Írak og Afghanistan, en þrátt fyrir það hafa slíkir glæpir ekki ratað í vestræna fjölmiðla. Það gerist bara þegar talin er sérstök þörf á að brennimerkja einhvern einn aðila stríðsátaka og það hefur oft verið gert !
En þá er líka öllu tjaldað til í ógeðslegum ,,show business áróðri sem oftar en ekki skýtur yfir markið. Og spyrja má, hverskonar fólk er það eiginlega sem notar dráp á börnum sem skiptimynt í valdatafli ?
Hvað skyldu mörg börn hafa verið drepin í Hiroshima og Nagasaki hér um árið ? Skyldi Truman Bandaríkjaforseti hafa verið mesti barnamorðingi síðustu aldar vegna ábyrgðar sinnar á þeim glæp ? Nei, annars, það mál var aldrei athugað eða talað neitt um kjarnorkuárásirnar á umræddar borgir með þeim hætti, enda sjálfsagt réttir aðilar að verki !
Við skulum reyna að vera sjálfum okkur samkvæm og viðurkenna glæpi sem framdir eru, án tillits til þess hverjir fremja þá !
Og kannski ættum við líka að fara okkur hægar í því að lofsyngja víkingana forfeður okkar, en um þá og þeirra framferði orti ég eitt sinn eftirfarandi stöku:
Víkingana er vert að kynna,
veruleikans mynd er stríð.
Þeir voru allir meira og minna
morðingjar á sinni tíð !
Var ekki einhverntíma sagt : ,, Sá yðar sem syndlaus er, kasti fyrsta steininum ?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:03 | Slóð | Facebook
19.3.2022 | 13:14
Enda viðsjárnar með beitingu kjarnavopna ?
Eins og flestum er kunnugt, sem hafa kynnt sér söguna, er Úkraína gamalt bitbein margra þjóða. Þar hafa ýmsir farið með völd og forræði. Landið var til dæmis stórt atriði í hugmyndum nazista um nýskipan Evrópu. Það átti að verða kornforðabúr hinnar nasistísku Evrópu !
Sókn Þjóðverja í austur ( Drang nach osten) hafði það að markmiði, eins og flestir sæmilega sögufróðir menn vita, að tryggja Stór-Þýskalandi nazismans lífsrými (Lebensraum) í nýrri nýlendu, þegar búið væri að sigra Sovétríkin og gera slavneskar þjóðir að þýskbókuðu undirmálsfólki !
Molotov utanríkisráðherra Sovétríkjanna 1941 er sagður hafa hreytt út úr sér í reiði við Ribbentrop hinn þýska starfsbróður sinn á þeim tíma: ,, Þið skuluð fá að iðrast þess að hafa ráðist á Sovétríkin ! Og Ribbentrop svaraði heldur aumingjalega :,,Láttu þá í Moskvu vita að ég var á móti því !
Hitlers-Þýskaland réðist á Sovétríkin til að afla sér nýlendna og auðlinda sem aðrir áttu. Gera átti íbúa hernuminna landsvæða að vinnuþrælum. Rússland ræðst inn í Úkraínu af ótta við það að Vesturlönd séu að hernema landið í gegnum fjármálaleg undirtök í atvinnulífi og stjórnkerfi !
Svo virðist sem þrengt hafi verið svo að rússneska birninum að hann sætti sig ekki lengur við áreitið. Hann er risinn upp á afturlappirnar og farinn að klóra frá sér. Og hvað getur það þýtt fyrir þjóðir Evrópu og heiminn allan ?
Versta birtingarmynd þess ástands sem skapað hefur verið, einkum vegna þeirrar ásælni að vestan sem verið hefur í gangi, er að Evrópa verði að Chernobyl-eyðimörk allt frá Bretlandi og austur undir Úralfjöll. Er slík niðurstaða mála eitthvað sem einhverjir vilja fá fram eða hverjir telja sig græða á slíkum Ragnarökum ?
Stórþýska hugsunin, að gera Úkraínu að fjármagnsþúfu sinni og nýlendu virðist enn til staðar árið 2022 og nógir virðast tilbúnir að ganga erinda Evrópu-auðhringsins meðal Úkraínumanna sjálfra. Sagan frá 1941 er á vissan hátt að endurtaka sig. Vofa Stefans Bandera og hans líka virðist ganga ljósum logum milli Brussel og Kiev þessa dagana og slagorð þeirra virðast metin hátt á Evrópuþinginu samhliða því !
Kjörnir þingmenn þar, með allan rétt til að tala, eru reknir úr ræðustól vegna þess að skoðanir þeirra eru ekki virtar málfrelsis.Grundvallar mannréttindi eru þannig fótum troðin. Rétthugsunarkerfi Evrópu-sambandsins er enn sem fyrr að undirstrika, að þetta miðstýrða bákn, með aðalstöðvar sínar í Brussel, er auðhringur en ekki lýðræðisbandalag frjálsra þjóða !
Ásælni Evrópusambandsins í auðlindir í öðrum löndum, hvort sem um er að ræða Ísland eða Úkraínu, sver sig í ætt við vesturevrópska auðhringinn sem stofnaði til sambandsins 1957. Þýska og franska auðvaldið tók þar höndum saman og sammæltist um að herja ekki framar á hvort annað, heldur finna sér önnur fórnarlömb og það hefur það gert síðan. Þar með má segja að stofnuð hafi verið ný öxulríki í Evrópu !
En valdahlutföllin þar hafa breyst með tímanum. Þjóðverjar virðast núorðið hafa öll völd í Evrópu-sambandinu og eru kannski í gegnum þá stöðu, að ná fram gömlum þýskum markmiðum. Frakkar hafa dregist þar svo aftur úr, að þeir eru lítið annað en taglhnýtingar Þjóðverja nú til dags !
Baráttan um auðlindir jarðar er alls staðar fyrir hendi. Sumir sækja þar á og aðrir reyna að verja sig. Yfirþjóðlegt fjármálavald vill nú valta yfir heilu þjóðlöndin í trássi við vilja íbúa þeirra og allt sem rétt er. Hættulegt ferli mála er knúið fram af lítilli forsjá hér og þar. Púðurtunnurnar í Evrópu eru orðnar margar nú til dags og finnast víðar en á Balkanskaga !
Það er gamla sagan sem er í gangi enn og aftur. Landvinningastefna fjármálavaldsins í meðförum Evrópu-sambandsins ræður þar för. Óhamin græðgi eftir auðlindum annarra, löngunin til að ná undir sig ótæpilegum arðránsgróða með nýrri nýlendustefnu. Að vinna ódáðaverk yfirgangsins hvar sem til þess gefst færi. Oft byrjar sú óheillaframvinda með vináttu-tilmælum og þróunarhjálp en endar með valds-yfirtöku !
Möguleikinn á því að friður ríki á þessari jörð er álíka mikill og að lögmál kærleikans ríki í helvíti !
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:34 | Slóð | Facebook
15.3.2022 | 14:01
Draumur eða veruleiki ?
Nokkuð hef ég pælt í draumi sem sótti mig heim eina nóttina skömmu eftir þingkosningarnar síðastliðið haust. Ekki vil ég segja að ég hafi beinlínis fengið martröð, þó sumir kynnu að halda það, en samt var þessi draumur óþægilegur, að mér fannst. Hann eiginlega sannfærði mig um það að nokkuð sem mig hafði all-lengi grunað væri í raun og veru sannleikur !
Mér fannst ég vera staddur einhversstaðar á heldur óyndislegum stað. Það var eitthvað þar á sveimi sem olli mér andlegri vanlíðan. Þetta var herbergi, nokkuð stórt, sem ég hafði aldrei komið í áður og kem vonandi aldrei inn í aftur. Tveir menn sátu þar við stórt borð og töluðu saman í lágum hljóðum !
Það var eitthvað pukurslegt við atferli þessara manna og yfir þeim var eitthvað sem mér fannst í draumnum vera óhreint í meira lagi. Ekki vissi ég þó hvað var þarna í gangi, en hafði á tilfinningunni að það væri eitthvað sem illa þyldi dagsins ljós. Mér fannst eiginlega sem einhver myrkraverk væru þarna á seyði !
Og allt í einu opnaðist það fyrir mér hverjir mennirnir voru ? Þetta voru formenn íhalds og Framasóknar, tveggja þeirra flokka sem myndað höfðu síðustu ríkisstjórn. Einhvernveginn voru þeir þó ótugtarlegri en þeir virtust alla jafna vera á sjónvarps-skjánum, en kannski fékk ég að sjá í gegnum þá þarna !
Einmitt þegar ég var að átta mig á því hverjir mennirnir voru, opnuðust dyrnar að herberginu og inn geystist kona ein, lítil vexti en nokkuð snaggaraleg. Þekkti ég strax að þar var á ferð formaður þriðja stjórnarflokksins. Spruttu þeir sem fyrir voru skjótlega á fætur og fögnuðu komugesti. Bersýnilegt var að þarna hafði verið boðað til einhvers fundar þessara flokksformanna !
Svo sá ég þessa tvo menn snúast í kringum konuna af mikilli stimamýkt. Kom í ljós að þeir vildu halda áfram stjórnarsamstarfinu, en breyta samsetningu stjórnarinnar með tilliti til ráðherraskipunar, og stilla þannig upp nýjum valdahlutföllum sem væru í betra samræmi við niðurstöður kosninganna. Virtust þeir hafa einhverjar áhyggjur af því hvernig þeirri málaleitan yrði tekið af þriðja hjóli stjórnarvagnsins, sem þó lítið væri, varð að vera með ?
Vildi annar þeirra fá forseta alþingis og heilbrigðis-ráðuneytið til sín en hinn fá eitt ráðherrasæti í viðbót vegna velgengni í kosningunum. ,,Væri ekki bara best að hafa það þannig, sagði hann brosleitur !
Greinilegt var að mönnunum var þetta mikið hjartans mál. En báðir sögðu þeir sannfærandi hvor í kapp við annan: ,,En þú færð að vera áfram í forsætinu, hafðu engar áhyggjur af því, við viljum ekki breyta neinu með það !
Sú snaggaralega leit á þá og brosti, svo reis hún snarlega á fætur og sagði : ,,Þá höfum við það þannig, ef ég fæ að vera áfram í forsætinu skiptir engu máli með allt hitt ! Þeir brostu út að eyrum og fullvissuðu hana um að hún gæti verið 100% örugg með það !
Hún leit með áberandi ánægjusvip á þá á móti og sagði hressilega: ,,Þá er sem sagt allt í lagi með áframhaldið hjá okkur og þakka ykkur fyrir almennilegheitin !Svo sveif hún á dyr og var greinilega afar sátt með sinn hlut !
Mennirnir tveir horfðu á hurðina lokast á eftir henni. Svo tókust þeir mjög lukkulegir í hendur og fóru að ráðslaga hvernig þeir ættu að hafa hlutina. Það var aldeilis munur að hafa frítt spil með það !
Ég horfði stíft á þá og skyndilega rann það upp fyrir mér að þeir myndu vera staddir í þingflokksherbergi íhaldsins og þar með skildi ég um leið hversvegna mér hafði fundist staðurinn svo óyndislegur. Þarna gat náttúrulega engum ærlegum manni liðið vel !
Svo hrökk ég upp og hugleiddi það sem fyrir mig hafði borið. Allt var það svo ljóslifandi fyrir hugarsjónum mínum að ég fann kaldan hrollinn læðast um bak mitt og brjóst. Svo nöturlegt fannst mér það sem ég hafði horft upp á !
Svo hugsaði ég með mér, var þetta draumur eða gerðist þetta í raun og veru ?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 18.3.2022 kl. 23:44 | Slóð | Facebook
12.3.2022 | 00:20
Enginn hefur rétt til að njóta alls á kostnað annarra !
Þegar átök brjótast út í heiminum, virðist oft eins og mörgum á Vesturlöndum finnist ekki mikið til um það þó styrjöld skelli á eða sé í gangi, - ef það er bara utan Evrópu. Það er mjög sérgæskufull afstaða !
Sú umræða sem er í gangi á Vesturlöndum á hverjum tíma, er oft algerlega utan við aðra heimshluta, en heimurinn er sannarlega ekki bara Vesturlönd. Lífsbarátta þjóða utan Evrópu skiptir alveg jafn miklu máli fyrir afkomu mannkynsins og það líf sem lifað er frá degi til dags innan Evrópu !
Evrópuríkin hafa lengi sogið til sín blóð frá umheiminum í gegnum arðrán, þrælahald, misrétti, kúgun og allra handa svívirðingar. Einkum hefur þetta háttalag átt við ríki í Vestur-Evrópu, hin gömlu nýlenduríki. Þeim yfirgangi hefur aldrei fylgt neitt annað en blóðsugutengd bölvun !
Gamla nýlendustefnan er að mestu dauð sem betur fer, en hin nýja nýlendustefna Vesturveldanna, í grófasta formi fjárhagslegrar yfirdrottnunar og arðráns, hefur leyst hana af hólmi. Og ekki er hún betri þegar glöggt er á málin litið. Þar eru myrkraverk og mútur að tjaldabaki í fullum gangi og heilu löndin yfirtekin án aðkomu íbúanna !
En þessi nýja kúgunarstefna má ekki ná því að þrýsta eðlilegum frelsiskröfum þriðja heims þjóða niður í svartnætti neyðar og dýpstu örvæntingar eins og hin gamla gerði !
Slíkt má ekki gerast aftur. Gegn því gangverki glæpanna er öllu ærlegu fólki, hvar sem er í heiminum, skylt að rísa og berjast fyrir réttlátum skiptum !
Fólk í Asíu og Afríku, fólk í Suður-Ameríku, fólk um alla veröld, hefur ekkert minni tilverurétt en það fólk sem býr í Vestur-Evrópu og Bandaríkjunum og hefur talið sig eins og aðal mannkynsins - eiga að njóta alls á kostnað annarra !
Alltaf er - í villuleiðandi umræðu og áróðri, vísað til kröfugerðar hins svonefnda alþjóðasamfélags, sem er í raun mjög óskilgreint Vesturlandahugtak og einkum notað með pólitískum hætti. Það virðist beinlínis hafa verið upphugsað til að þjóna hlutdrægum markmiðum í allri umræðu !
Í hugmyndafræðilegum skilningi mætti ætla að þetta skýjaða hugtak hafi í fyrstu orðið til í einhverri sósíaldemókratískri áróðurs-smiðju, þó gripið hafi verið til notkunar þess af fleiri aðilum í seinni tíð. Þetta alþjóðasamfélags-hugtak er þjónustubundið vissum aðilum og engin frjáls hugsun þar á ferð !
Tuttugasta og fyrsta öldin er ekkert sem boðar nýtt upphaf fyrir mannkynið, þó sumir hafi haldið það fyrir tuttugu árum. Við erum alltaf á kafi í sömu gömlu drullupollunum og virðumst aldrei læra neitt !
Enda hafa kennsluöflin ekki verið góð, þrungin bullandi stórveldapólitík í sérgæskufullu samhengi kúgunar og misréttis, með skít á hverju strái !
Það þarf margt að breytast í þessum heimi og sér í lagi þarf ein mesta bölvun mannkynsins, sem viðgengist hefur síðustu þrjár, fjórar aldirnar að heyra sögunni til og það fyrir fullt og allt. Og hver skyldi sú bölvun vera ?
Það er syndaskrá Vestur-evrópsku nýlenduríkjanna gagnvart umheiminum, sem er orðin slík glæpasaga að það yfirgengur allt annað. Bikar þeirrar bölvunar er svo barmafullur að út úr flóir !
Tuttugasta og fyrsta öldin hlýtur að uppskera afleiðingar þeirrar bölvunar á næstu áratugum !
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:07 | Slóð | Facebook
2.3.2022 | 00:04
,,Og bræður munu berjast !
Stríðið í Úkraínu, sá harmleikur sem það óneitanlega er, virðist nú hafa orðið hvalreki fyrir suma. Bara til að nefna eitt, Boris Johnson sem var að missa allt undan sér í pólitískum skilningi fyrir skömmu, hefur rifið sig upp í leiðtogagervi Churchills og nú talar enginn um að hann segi af sér, jafnvel ekki hans eigin flokksmenn.
Hann gæti því líklega bara hugsað með sér : ,, Oh, what a lovely war, right on time for me !
Refsiaðgerðir gegn Rússum eru auðvitað sjálfsagðar við þessar aðstæður, en nokkuð virðist sérkennilegt hvernig staðið er að þeim. Vafalaust hafa Rússar þó gert sér allnokkra grein fyrir slíku áreiti fyrirfram og ekki talið það líklegt til að hamla för. En það kemur þá í ljós hvernig fer !
Slíkar aðgerðir eru reyndar oftast tvíeggjaðar og hitta báða fyrir, þann sem beitir þeim engu síður en þann sem á að verða fyrir þeim. En aðalatriðið er þó trúlega að þessu sinni - að rétti aðilinn er fyrir sökum hafður og liggur nú afskaplega vel við fordæmingarhögginu !
Þjóðverjar virðast þó reyndar í leiðinda klemmu hvað þessa deilu varðar. Þeir eru líklega sú þjóð sem hefur haft svakalegust kynni af Rússum og með vissum hætti má líklega segja að milli Rússa og Þjóðverja hafi ríkt einhverskonar gagnkvæm virðing síðustu áratugina !
En nú verða Þjóðverjar að gera svo vel að taka sér fulla lýðræðislega stöðu meðal hinna syndlausu þjóða og refsa illþýðinu sem ógnar kærleiksheimili mannkynsins nú um stundir. Skyldan verður auðvitað að ganga fyrir öllu !!
En hvað sem menn vilja um málin segja, er erfitt að skilja bölvaða kergjuna í Rússunum og það þegar bæði Íslendingar og Færeyingar eru búnir að skella á þá viðskiptaþvingunum. Þeir ættu líklega að geta séð að þá er þeim enganveginn stætt á því að halda þessari stríðsvitleysu áfram !
Þegar tvær norrænar hetjuþjóðir - báðar með þungavigtar efnahag, sameinast gegn þeim, hljóta þeir að endurheimta dómgreind sína og fara að hegða sér eins og menn. Jafnvel Rússar geta nú ekki staðist allt þó þeir haldi það kannski sjálfir !
Þar fyrir er auðvitað best að Úkraínumenn sjálfir sjái fyrir sínum málum, þó þeir hafi reyndar ekki af mikilli sjálfstæðissögu að segja. Og þar sem yfirvöld í Úkraínu eru, líklega að vestrænu mati, laus við alla spillingu, ættu þau svo sem að geta reynst þjóð sinni vel !
Það ættu þá lífskjörin að geta sannað, en manni skilst þó að það geri þau reyndar ekki. Landið er ríkt að öllu náttúrufari, en það ríkidæmi virðist ekki skila sér ýkja mikið til almennings í landinu. Sá þjóðarauður fer greinilega eitthvað annað - eins og gerist til dæmis hérlendis !
Það hefur líka verið talað fjálglega í fjölmiðlum um vináttu Pólverja og Úkraínumanna, en oft hefur nú sögulega séð verið grunnt á henni. Sú var tíðin að Pólverjar réðu yfir Úkraínu og reyndust þá hreint ekki góð herraþjóð fyrir íbúa landsins !
Og reyndar er ekki nema rétt rúm öld síðan Pólverjar gerðu síðast tilraun til að leggja Úkraínu undir sig með hervaldi. Svo áróðursmálin í samtímanum koma oft skringilega út í ljósi sögunnar og reynast oft meira en lítið innihaldslaus og blekkjandi !
Ráðherrar í hægristjórninni sem nú er við völd á Íslandi, hafa rifið sig niður í rass í fjölmiðlum vegna þess að stríð sé hafið í Evrópu. Það er jafnvel talað um að slíkt hafi ekki gerst síðan í heimsstyrjöldinni síðari !
Er þetta einsýna lið búið að gleyma loftárásum Nató á Júgóslavíu sálugu fyrir rúmum tveimur áratugum ? Af hverju skyldi það ekki muna eftir þeim ? Jú, líklega vegna þess að það var náttúrulega allt öðruvísi og betra stríð. Þar var bara Nató að stilla til friðar eins og venjulega !
En þeir sem voru drepnir í loftárásum Nató, hins heilaga friðarbandalags, á Belgrad á þeim tíma, líklega um 1500 manns, hafa sennilega ekki fundið til mikillar fróunar á dauðastundinni yfir því að það væru þó ,, réttir aðilar að drepa þá. En sumir virðast alltaf hafa ádeilulaust ,,license to kill !
Stríð er alltaf viðbjóður, en stríðið bak við tjöldin sem er þá búið að heyja sem undanfara hinna beinu átaka, er kannski það ljótasta af því öllu. Það skiptir nefnilega engu þó menn reyni að mála allt í hvítu og svörtu, staðreyndirnar tala sínu máli. Enginn er saklaus í slíku gjörningaspili !
Það er eins og alltaf tekist á um peninga og völd í slíku reiptogi, nýja nýlendustefnu og blóðsugueðli í austri sem vestri, og þá eru mannslífin lítils virði, jafnt í Úkraínu sem annarsstaðar !
25.2.2022 | 09:28
,,Vandi Eflingar og ASÍ ?
Margt hefur að undanförnu verið til umræðu varðandi málefni Eflingar, en að sumu leyti hafa mál þar ekkert verið ósvipuð hinni raunverulegu stöðu innan ASÍ eins og margir vilja meina að hún sé. Þar sé ekki síður gamalgróið setulið sem mætti og ætti að víkja !
Sumir hafa haft það á orði, að þegar fyrrverandi forseti fór frá borði, hafi hann skilið eftir í brúnni á sambandsfleyinu rótfasta viðtengingarklíku, sem væri honum mjög spottatengd !
Ekki er gott að henda reiður á því hvað rétt er í slíku, en margt bendir þó til þess að grunsemdir um slíkt eigi við drjúg rök að styðjast, því býsna oft eru valdamenn ekki sérlega fúsir að sleppa tökunum !
Það er meira að segja skoðun sumra, að núverandi forseti hafi aldrei tekið almennilega við völdum í ASÍ, hafi aldrei tekið þann slag sem þurfti til þess. Það er svo sem vel þekkt að eitt er að þurfa og annað að þora !
Svo hliðstætt setulið heimaríkrar klíku kann alveg eins að vera til staðar í ASÍ og í Eflingu, þó sitjandi forseti hafi kannski hingað til forðast að drífa sig í stjórnarstefnu-bætandi hreingerningu á skrifstofunni þar !
Eða hafa menn merkt það í einhverju, að breyting hafi átt sér stað á starfsháttum ASÍ ? Eins og ætti að verða þegar ný og fersk forustu hefur tekið við ? Hafa einhverjir nýir vendir farið sópandi þar um sviðið ?
Ef það sem hér hefur verið sagt er rétt, virðist full þörf á því að spyrja hver sé í raun forseti ASÍ og hverjir hafi hin raunverulegu völd þar á bæ ?
Og í framhaldi mætti þá líka spyrja: Eru almennir félagsmenn í verkalýðs-hreyfingunni kannski meira og minna arðrændir af innanhúss-mafíum, klíkum sem samanstanda af græðgisfullu eiginhagsmunaliði og hugsjóna-lausum afætum ? Er ef til vill sálarlaust kerfislið þar við völd ?
Mörgu breyta mætti og ætti,
mun það flestum orðið ljóst.
Alþýðan með ýmsum hætti
elur snáka sér við brjóst !
Það skyldi þó aldrei vera, að tilvistarvandi sá sem virðist ógna verkalýðshreyfingunni sé fyrst og fremst innanhússplága, heimilisböl, - sem sé eitthvað sem er þyngra en tárum taki, - mala domestica majora sunt lacrimis ?
22.2.2022 | 11:19
,,Þá vil ég tala líka !
Að leggja orð í belg, að leggja eitthvað inn í umræðu, hlýtur að vera flestum nærtækt og eðlislægt, ef þeir á annað borð hafa einhverjar skoðanir fram að færa, sem þeir geta gengið út frá. Að öllu eðlilegu ætti það að geta talist ósköp mannleg tilhneiging að vilja segja sitt !
Ástæðan fyrir mínum pistlaskrifum hefur alltaf verið mjög einföld. Ég hef viljað fylgja inntaki þekktrar vísu eftir Káinn og löngum haft hana fyrir mín einkunnarorð - en hún hljóðar þannig :
Fyrir því lítið hef ég haft
heimsku minni að flíka.
En þegar aðrir þenja kjaft
þá vil ég tala líka !
Og af hverju skyldi maður ekki láta í sér heyra, þegar tjáning orðs er orðin jafn yfirtaksmikil og hún er í samfélaginu í dag ? Ef nánast allir eru að þenja kjaft því skyldi maður ekki gera það líka ? Er það ekki frelsi og mannréttindi að tjá sig og láta hvergi deigan síga ?
Sem betur fer sitja Íslendingar ekki almennt úti í horni í fýlu og þegja. Fólk tjáir sig, lætur í sér heyra og hefur í flestum tilfellum frá mörgu að segja. Netið er þannig orðið að nokkurskonar Háskóla samfélagsins !
Í deiglu þess er því margvíslegt lærdómsefni í gangi. Og lýðræðið á að geta blómstrað í gegnum mannleg samskipti meðan þau eru heilbrigð og falslaus. Eða hvað segir hið fornkveðna en gildisbæra orðtak, maður er manns gaman !
Netið er orðinn vettvangur umræðu sem ekki verður svo auðveldlega kæfð. Rödd fólksins fær að heyrast, fólk getur sagt skoðun sína. Sennilega er flestum valdaöflum illa við netið jafnvel þó þau noti það líka !
Möguleikar umræðunnar eru orðnir svo fjölbreyttir að kúgarar valdbeitingarinnar eru í stökustu vandræðum. Allt lekur út með einhverjum hætti !
Við þurfum menn eins og Julian Assange, menn sem berjast gegn leyndarhyggjunni og myrkravaldinu í heiminum, öllu svínaríinu og ofbeldinu í kringum ríkisvæddar kúgunarstofnanir. Fólk vill fá að búa við frið en ekki stríð. Það vill fá að eiga sitt líf með frjálsum hætti !
Höldum umræðunni áfram og verjum umræðuréttinn. Orð eru til alls fyrst og látum ábyrgð fylgja orðum, okkur sjálfum til æru og uppbyggingar !
18.2.2022 | 00:09
Að ,,leiðrétta sannleikann !
Þeir eru ófáir sem hafa tekið sig til og skrifað sagnfræðilegar úttektir á einhverjum lífsþáttum liðinnar tíðar. Það er oftast hið besta mál, einkum þegar ljóst er að fullur vilji er til þess hjá höfundi að þræða veg sannleikans. En því miður er stundum vikið nokkuð langt af þeim vegi !
Það er þekkt staðreynd að mjög margar ævisögur eru skrifaðar með það fyrir augum að drýgja hlut viðkomandi söguhetju, og er þá stundum seilst nokkuð langt til fanga. Það sem aðrir eiga með réttu er þá stundum dregið í rangan dilk. Það virðist oft gert vitandi vits og er skammarlegt framferði !
Það er til dæmis athyglisvert hve margir stjórnmálamenn rita ævisögur sínar eða fá menn til þess. Kannski er þar um að ræða einn þann hóp sem telur sig þurfa að ,,leiðrétta margt og þar með bæta eigin ímynd ?
Margir leigupennar virðast skeyta lítt um ærleg vinnubrögð og skrá það eitt sem virðist þjóna þeim tilgangi sem þeir hafa verið fengnir til að gylla !
Það segir sig sjálft að slíkir höfundar hafa ekki í sér neina trúmennsku gagnvart því sem rétt er. Sannleikurinn er þeim þannig ekkert takmark !
Í seinni tíð virðist þeim hafa fjölgað mjög sem óvandaðir eru í umfjöllun mála og alveg tillitslausir gagnvart rétti þeirra sem látnir eru. Söguleg sannindi eru þannig svikin og rangfærð með ýmsum hætti !
Sjaldnast þarf langt að fara til að finna dæmi um slíka ritmennsku. Menn sem voru mjög óvinsælir á samtíðartíma sínum, verða stundum í hagsmuna-tengdum eftirskrifum einhverra, allra manna vinsælastir og vel látnir, að sögn. Þá er öllu sem rétt er snúið algerlega á hvolf !
Það er ógeðslega að verkum staðið þegar slík fölsun á staðreyndum á sér stað. Þar virðist samt ekki endilega þurfa beinan skyldleika manna til að valda slíkum afbrigðum á prenti, heldur virðast öllu fremur ráða blóðsugutengsl hugarfarsins !
Þekki ég nokkur dæmi um slík vinnubrögð og hef megnustu skömm á þeim eins og reyndar allir menn með sómatilfinningu ættu að hafa !
Það er þannig því miður býsna margt sem bendir til þess að drullusokkar fortíðarinnar verði bókaðir öndvegismenn í eftirskrifum manna sem bera enga virðingu fyrir því sem rétt er og vilja lagfæra SANNLEIKANN !!!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:38 | Slóð | Facebook
11.2.2022 | 16:10
Efling eða Kefling ?
Það hefur varla farið framhjá mörgum að það hafa verið illvíg átök að undanförnu innan verkalýðs-samsteypunnar Eflingar um það hvernig þar skuli haldið á málum !
Eftir um tuttugu ára steindauða formannstíð Sigurðar Bessasonar voru margir farnir að afskrifa Eflingu sem lifandi félag í baráttu fyrir réttindum verkafólks. En svo var Sólveig Anna Jónsdóttir óvænt kosin formaður og þá má segja að allt hafi orðið vitlaust !
Í fyrsta lagi hafði það gerst sem mátti ekki gerast, sem sé það að manneskja sem vildi standa fyrir því að Efling væri í sannleika lifandi baráttutæki fyrir verkafólk hafði komist að völdum í félaginu !
Allt í einu stóð ljósfælið lið utan og innan félagsins frammi fyrir þeirri staðreynd að Efling ætti að fara að standa undir nafni. Aldrei í lífinu skyldi það verða, hugsaði þetta sérgæðalið sem var alla daga með þjalirnar á lofti yfir eggjum félagsins til að sverfa allt bit þaðan burt !
Og af hverju skyldi þetta lið hafa tekið þannig á málum ? Af því að það var og er steindautt og félagslega gelt, með rætur sínar í gömlum dauðatíma félagsins. Af því að það er búið að lifa góðu lífi á háum launum hjá félaginu til margra ára og hafði engan áhuga fyrir verkalýðs-baráttu !
Þetta lið er því ekki frambærilegt sem fulltrúar fyrir Eflingu, það er aðeins frambærilegt sem fulltrúar fyrir Keflingu. Ef það á að hafa völdin í félaginu mun öll barátta fyrir verkalýðslegum réttindamálum þar verða kefluð eins og hún var á steindauðum stjórnunartíma Sigurðar Bessasonar !
Ég skrifaði á þessa síðu fyrir nokkru pistilinn Á Efling að vera vakandi eða sofandi ? Ég get enn vísað á þann pistil því það sem þar stendur er í fullu gildi. Sólveig Anna hefur sýnt það að hún er að berjast fyrir réttindum hinna almennu félagsmanna í Eflingu. Það verður ekki frá henni tekið !
Ég fæ hinsvegar ekki séð að hinir frambjóðendurnir séu trúverðugir hvað það snertir. Framboð þeirra eru, að minni hyggju, fyrst og fremst leidd af þeim öflum, innan félags sem utan, sem virðast vilja allt til vinna að það verði ekki neinni lifandi formennsku viðhaldið innan stjórnar Eflingar !
Spurningin er því, á hin mosagróna félagselíta að halda velli við óbreytt kjör og fríðindi, eða á að taka til í ranni félagsins og hleypa þar ferskum vindum inn ?
Það er einfaldlega verið að kjósa um framtíðarstefnu þessarar verkalýðs-samsteypu, hvort sú stefna eigi að miða að Eflingu eða Keflingu ?
6.2.2022 | 15:30
Ég man það fólk -
Ég man það fólk sem íslenskt var í anda
þó oft það hefði liðið sára nauð.
Með sinni þjóð það vildi í veröld standa
og vera þar sem skyldan helst því bauð.
Ég mætti því á leiðum lífs og anna
og löngum fannst mér bjart á dögum þeim.
Það fólk var mitt ég fann þar hugsun sanna
sem fyllti mig af trú á betri heim.
Ég man það fólk sem Davíðs kvæði kunni
og kaus að leggja þau við hjartastað.
Í dagsins önn það mælti þau af munni
og mér finnst sem ég ennþá heyri það.
Það elskaði þau kvæði af öllu hjarta
og af þeim sjóði fengið gat ei nóg.
Það sá í djúpi sálar geisla bjarta
er sindruðu um lífsins Fagraskóg.
Ég man það fólk og mun því aldrei gleyma
því minninganna sýn til þess er góð.
Það vissi hvar það átti að eiga heima
og ól þá tryggð sem frægði land og þjóð.
Það hafði í engu glatað gefnum rótum
en gekk sinn veg með sálar aukið pund.
Það var svo fjarri fölskum tíðarhótum,
það fólk var mitt og er það hverja stund.
Rúnar Kristjánsson
Nýjustu færslur
- Sérfræðingasúpan ,,naglasúpa allsnægtanna !
- Heiða Björg fær ,,Marshallhjálp !
- Nokkur orð um stríðsglæpinn mikla í Libýu !
- Gjörbreytt þjóðarásýnd ?
- Erum við undirlægjuþjóð allrar fávisku ?
- ,,Upplausn Bandaríkjanna !
- Hin rangsnúna framvinda ytra og innra arðráns !
- Saga síðustu 80 ára : Litið yfir svið þar sem lítið er um frið !
- Undir alveldi ,,Sölunefndar þjóðarlífseigna !
- Afneitun á íslenskum fjölbreytileika !
Eldri færslur
- September 2025
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.9.): 5
- Sl. sólarhring: 171
- Sl. viku: 1100
- Frá upphafi: 397536
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 997
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
-
: Fjörusprek og Grundargróður (2023) -
: Í norðanvindi og vestanblæ (2013) -
: Hjartað slær til vinstri - Úr minningaheimi Kalla í Nesbæ (2010) -
: Bræðingur og Brotasilfur (2004) -
: Þar sem ræturnar liggja (2004) -
: Út við ysta sæ (2000) -
: Frá fjöru til fjalls (1996) -
: Vísur frá Skagaströnd (1993) -
: Ljóð frá Skagaströnd (1991)