Leita í fréttum mbl.is

Reykjavík fyrir rúmri öld !

 

 

Mannsćvin er í sjálfu sér stutt, jafnvel ţegar best lćtur. Fólk er kannski rétt fariđ ađ lćra sćmilega á lífiđ ţegar ađ kveđjustund kemur, en svigrúminu verđur ekki svo auđveldlega breytt. Tilverutímanum virđist vera markađur bás međ ţeim hćtti sem viđ ţekkjum og viđ ţađ verđur ađ una ţó súrt ţyki !

 

Af ţessu leiđir auđvitađ, ađ menn hafa ekki sérlega mikla eigin yfirsýn varđandi ţađ sem gerst hefur. Ţekking ţví viđkomandi fćst bara í gegnum ţćr upplýsingar frá öđrum sem skráđar hafa veriđ. Hin lifandi upplifun varđandi ţá hluti fer međ fólkinu ţegar ţađ deyr. Ţađ glatast ţví stöđugt mikil upplifun međ hverri kynslóđ sem kveđur og raunar hverri manneskju sem deyr. Ţađ er eitt af ţví dapurlega viđ lífiđ !

 

Fyrir rúmri öld var stórborgin okkar Reykjavík ósköp lítiđ og hrátt bćjarsamfélag. Ţar baslađi fólk viđ ađ tóra og sumir höfđu ţađ ekki af. Fólk dó ţá iđulega úr fátćkt og skorti og ţađ ţótti svo sem ekki neitt tiltökumál. Ađstćđur til lífs og afkomu voru nefnilega oft býsna takmarkađar. Á ţessum tímum var til dćmis notuđ talsvert eftirfarandi orđasamsetning um hinar lítt ákjósanlegu lífsađstćđur í sjálfum höfuđstađnum - ,,grútarbrćđslusalernahreinsunarfyrirkomulagiđ !”

 

Svo var mál međ vexti ađ ýmsum ,,betri borgurum” ţótti ólyktin frá grútarbrćđslunni í Örfirisey alls ekki sćmandi höfuđstađ landsins. En Geir gamli Zöega, sem rak grútarbrćđsluna, af alţekktum dugnađi og fyrirhyggju, skellti skollaeyrum viđ allri ádeilu varđandi lyktina, ţví hann vissi sem var ađ ţarna var bara um peningalykt ađ rćđa. Og Geir hafđi vissulega sitt vćgi í atvinnulífi bćjarins og gat í mörgu fariđ sínu fram !

 

En ţar fyrir utan var svo annađ vandamál og ţađ var varđandi hreinsun hinna fjölmörgu útikamra, sem var alveg sérstakt skítamál í bćnum. Sóđaskapurinn frá kömrunum var nefnilega mikill og ćrin ţörf úrbóta !

 

Bćjarstjórnin tók ţví ţau mál í sínar hendur. Réđi hún menn ţar til hreinsunarstarfa í ákvćđisvinnu, en margir tóku ţví illa í fyrstu og ţóttust eiga sinn skít sjálfir. En samt vann hreinlćtisţörfin hćgt og bítandi á !

 

Ţetta hreinsunarstarf var yfirleitt framkvćmt á nóttunni. Ţađ voru notađar hestakerrur viđ verkiđ, kassinn var hár og hólfađur í tvennt og lok yfir. Fína fólkiđ talađi um súkkulađivagna en almenningur um drulludrossíur. Margt gerđist spaugilegt í sambandi viđ ţessi hreinsunarmál, ţví gárungar voru auđvitađ til ţá eins og nú. Má tilfćra hér eina frásögn um ţađ :

 

Einu sinni ţurfti frú ein ađ kvarta yfir hreinsun, en henni var illa viđ konu manns ţess sem tekiđ hafđi hreinsunina ađ sér. Hún hringdi og kona mannsins kom í símann. ,,Er ţetta drulludrossían ?” spurđi konan og lagđi svo símann á. Hin konan ofsareiddist yfir óforskömmugheitunum og hringdi strax á miđstöđ, en ţá var ekki búiđ ađ slíta sambandinu. Hún spurđi : ,,Er ţetta miđstöđ ?” og hin svarađi ,,já.” ,, Hvađa númer var ađ hringja hingađ ?” spurđi sú móđgađa. ,,Ţađ veit ég andskotann ekkert um,” svarađi hin sallaróleg og lagđi símann á !

 

Á ţessum tíma var Reykjavík sem fyrr segir ósköp hrátt bćjarfélag. Ţađ ţekkti grútarlykt og notađist viđ heldur ókrćsilega útikamra. Lífiđ í bćnum hjá almenningi miđađist viđ ađ hafa í sig og á og stundum náđist ţađ ekki ţrátt fyrir ţrćldóm og basl. Margir áttu verulega bágt. Fátćkrafulltrúar voru ađ störfum á vegum bćjaryfirvalda og var svo langleiđina til 1940, ef ekki lengur ?

 

Í dag mćttu ţví margir minnast ţess í hofmóđi sínum og stórborgarstolti, ađ ađstćđur mannlífsins í Reykjavík voru svona og ţađ er ekki svo ýkja langt síđan. Ţá var bara ađ langmestu leyti venjulegt fólk í Reykjavík rétt eins og annars stađar í landinu. Jafnvel svokölluđ stórmenni voru ekkert sérlega stór, ţegar á allt var litiđ !

 

En sumir eru ţannig gerđir, ađ ţeir vilja sem minnst af óglćsilegri fortíđ vita. Og líklega er ţađ ţá slíkum í hag, ađ vitnin sem upplifđu umrćddar Reykjavíkur - ađstćđur á ţessum tíma, eru ađ sjálfsögđu öll dauđ !

 

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 372
  • Sl. sólarhring: 408
  • Sl. viku: 1508
  • Frá upphafi: 318932

Annađ

  • Innlit í dag: 344
  • Innlit sl. viku: 1182
  • Gestir í dag: 339
  • IP-tölur í dag: 330

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband