Leita í fréttum mbl.is

Menn eru gerendur hlutanna !

 

 

Eitt af ţeim orđskrípum sem leiđandi fólk hefur gjarnan gripiđ til, ekki síst í seinni tíđ, er ađ ekki eigi ađ deila á manninn heldur málefniđ. Ţetta er líklega gert í varnarskyni til ađ létta ádeilu á ţá sem forustu-hlutverkum gegna. En ţađ gleymist ţá ađ menn eru fyrst og síđast gerendur hlutanna !

 

Á sem sagt ađ gagnrýna nazismann en ekki Hitler ? Á ađ gagnrýna kommúnismann en ekki Stalín ? Á ađ gagnrýna kapítalismann en ekki Morgan eđa Rockefeller ? Af hverju er viđleitnin iđulega sú ađ fría ţá menn viđ ábyrgđ sem voru fremstir í ţví ađ skapa ógćfuferliđ sem varđ ?

 

Hvađ hefđi orđiđ úr nazismanum ef Hitler hefđi ekki haft forustuna međ sefjunarvaldi sínu og djöfullegum framgangsmáta ? Hvernig hefđi kommúnisminn hugsanlega ţróast ef Stalínisminn hefđi ekki komiđ til ? Hverjir mögnuđu upp arđránseđli kapítalismans meira en Morgan og Rockefeller ? Stađreyndir Sögunnar segja oftast sitt međ skýrum og afgerandi hćtti !

 

Af hverju má ţá ekki tala hreint út um hlutina og vísa ábyrgđ illrar framvindu til ţeirra sem fyrir henni hafa stađiđ og standa ? Viđ vitum auđvitađ ađ ţeir sem hafa völd og mikiđ af peningum eignast formćlendur og áhangendur í ţessum heimi langt umfram verđleika, en af hverju má ekki gagnrýna ţá fyrir breytni ţeirra ef hún gefur fullt efni til ţess ?

 

Viđ vitum líka ađ keyptir formćlendur og áhangendur eru ekki ţekktir af ţví ađ vera sannleikans megin ţegar mál eru gerđ upp. Ţar er hvorki sannfćring eđa samviska vakandi í brjóstinu – ađeins buddunnar lífćđ !

 

Málefni verđa ekki til af sjálfu sér. Ţau eru vakin upp og sett fram – af einhverjum. Ef ţau eru og reynast fyrirlitleg frá eđlilegu, siđrćnu og mannlegu sjónarmiđi, ţá er sá líka fyrirlitlegur sem veitir ţeim brautargengi. Ţađ ćtti ađ vera auđvelt mál ađ skilja ţađ !

 

Ţađ er ţví ekkert óeđlilegt eđa rangt viđ ađ gagnrýna viđkomandi mann fyrir ađ vekja upp ţađ sem reynist illt og niđurbrjótandi fyrir heilbrigđ samfélagsleg gildi. Gerandi slíks athćfis veldur upphafinu og hlýtur ađ teljast ábyrgur fyrir ţví sem hann hrindir af stađ !

 

Gott er jafnan ađ gagnrýni sé hófstillt en ekki merkt ofstćki og öfgum. En ađ gagnrýna bolta en ekki mann er ađ drepa allri markvissri ádeilu á dreif og ţar međ árangri hennar. Einhver sparkar boltanum og boltinn gerir ekki neitt einn og sér. Gagnrýni ţarf ţví ađ beinast ađ gerendum hlutanna !

 

Ţeir sem bođa niđurrif heilbrigđra samfélagslegra gilda eru ekki og mega ekki verđa hafnir yfir gagnrýni. Laodíkeu andi ţeirra hlýđir engum lögum og stefnir ekki ađ neinu góđu. Hann er víđa á ferli í dag og gegn honum ţarf ađ berjast fyrir uppbyggingarmálum réttlćtis og sannleika, í nafni allra heilbrigđra siđagilda mannlegs samfélags !


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 93
  • Sl. sólarhring: 324
  • Sl. viku: 2040
  • Frá upphafi: 319536

Annađ

  • Innlit í dag: 69
  • Innlit sl. viku: 1653
  • Gestir í dag: 64
  • IP-tölur í dag: 64

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband