Leita í fréttum mbl.is

Hátíđ ljóssins er gjöf Guđs !

 

 

 

 

Einu sinni ákvađ ég ađ yrkja jólaljóđ nákvćmlega kl. 18 á ađfangadag. Ţađ var áriđ 1973. Ég settist niđur í herberginu mínu, ađ norđaustan á efri hćđinni heima í gömlu Grund, og beiđ spenntur komu jólanna, var tilbúinn međ blýant og blađ !

 

Svo glumdi hringingin viđ frá kirkju-klukkunum í útvarpinu og ég fékk ţann innblástur sem til ţurfti og orti á nćstu mínútum lítiđ jólaljóđ sem mér hefur ţótt vćnt um allar götur síđan. Svo vćnt hefur mér ţótt um ţađ, ađ ég hef aldrei séđ ástćđu til ađ endurtaka leikinn. Ţetta litla jólastef birti ég svo í fyrstu bók minni sem út kom 1991. Ţađ hljóđar svo :

 

Til dýrđar Guđi nú er hátíđ haldin

og heimsins ţjóđum dýrmćt blessun fćrđ.

Ţađ vermir friđur hjörtu ung og aldin

sem áđur voru döpur eđa sćrđ.

Og bjarmi vonar lýsir lífsins vegi,

og ljúfur straumur fer um hverja sál.

Viđ fögnum öll međ gleđi Drottins degi

er dýpsta sćla hrekur fals og tál.

 

Mér fannst ţetta segja ţađ sem segja ţurfti. Ef mannkyniđ sameinađist bara um friđ og hegđađi sér eins og ţađ ćtti ađ gera, ţyrfti heimurinn ekki ađ vera sá ógnarstađur sem hann hefur veriđ gerđur ađ – allt of víđa, fyrir allt of marga. En rétt hegđun manna er nú bara ţađ sem lengstum hefur vantađ. Menn virđast vilja stríđ en ekki friđ. Og helst virđast menn vilja ađ ađrir búi viđ stríđ, bara ekki ţeir sjálfir. Ţar er sérgćskan ađ verki eins og löngum fyrr og síđar og sérgćskufullir menn eru hćttulegir öllu umhverfi sínu !

 

Mannkyniđ er sýnilega enn jafn óţroskađ og ţađ hefur lengstum veriđ. Ţví hefur sannarlega ekki fariđ fram nema síđur sé. Og 21. öldin sem nú er senn liđin ađ einum fjórđa hluta til, hefur sýnt ađ mađurinn hefur ekkert lćrt og kemur ekki til međ ađ lćra neitt viđ óbreyttar ađstćđur. Allur hryllingur síđustu aldar hefur ţar ekki haft neitt ađ segja. Ţađ mun ţannig ekkert breytast nema ţá viđ beint inngrip Skaparans, enda hlýtur ađ fara ađ koma ađ skuldadögunum. Ţađ getur ekki hjá ţví fariđ !

 

Víđa er hart í heimi, ţađ vantar marga mat og nauđsynjar, en umfram allt vantar fólk friđ og öryggi. Ţađ er ţungbćrt ađ verđa ađ horfa upp á ţjáningar milljóna manna enn einu sinni á ţessum tímamótum. Hvenćr skyldu ţćr enda ? Ţađ var víđa fagnađ um síđustu aldamót og talađ um hina nýju friđaröld ? Varđ hún sjálfdauđ á sínu fyrsta ári ?

 

Senn er hún farin ađ fjórđungi til

og friđurinn hvergi til stađar.

Enginn sér nálgast ţau skuldanna skil

sem skapađ fá ađstćđur glađar !

 

Ţađ er nöturlegt fyrir allt mannkyniđ ţegar allt stendur í stađ og andlegar framfarir verđa allar í skötulíki eins og nú hefur veriđ á heimsvísu – lengi !

 

En ţrátt fyrir allt er ţađ svo, ađ enn er hćgt ađ gleđjast viđ ţá hátíđ í íslenskum veruleika sem helguđ er ljósi og kćrleika. Ţađ ber vissulega ađ ţakka, ţó viđ Íslendingar eigum auđvitađ ekkert skiliđ í raun og veru umfram ađra. Vonandi fćrir áriđ sem framundan er, hrjáđu mannkyni einhverjar lausnir á ţeim vandamálum sem dómgreindarleysi og vanhugsun ríkjandi valdamanna hefur hlađiđ upp ađ undanförnu !

 

Megi sem flestir finna fró í ţví ađ horfa til hćkkandi sólar og međtaka inn í sál sína hinn friđelskandi fjölskylduanda jólanna – og verđa betri og meiri manneskjur fyrir vikiđ. Látum börnin međ sakleysi sínu kenna okkur ađ rata veginn sem liggur til himnaríkis. ,,Slíkra er himaríki“, segir Kristur í Orđi sínu !

Gleđileg jól !

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 84
  • Sl. sólarhring: 353
  • Sl. viku: 1723
  • Frá upphafi: 319977

Annađ

  • Innlit í dag: 72
  • Innlit sl. viku: 1427
  • Gestir í dag: 72
  • IP-tölur í dag: 72

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband